Forsíða Hrefna.isHafðu samband við Hrefna.is



Skráðu þig á póstlista
Tölvupóstfang:
Skrá  Afskrá


 

 Hrefnukjöt

Grafið hrefnukjöt

Reykt hrefnukjöt

Hrefnuhakk

Þurrkað hrefnukjöt

Saltað Hrefnuspik

Súr Hvalur

gunnar@hrefna.is 

sími: 690-3408

Fréttir | Fréttamiðlun

23. ágúst 2010[CATEGORY]
Hvalaskoðun með hvalveiðimönnum!!

Hrefnuveiðimenn vinna nú að því að breyta skipi sínu Hrafnreyði KÓ - 100 í ferða- og skoðunarskip. Ekki verður þó um það miklar breytingar að ræða að skipið verði óhæft til að halda hrefnuveiðum áfram. Einungis er um að ræða breytingar er snúa að öryggi farþega og fleira.

Þá verður sett upp fræðsla á millidekki með myndum af hrefnuveiðum fyrr og nú. Einnig verða þar til sýnis ýmsir hlutir af og úr hrefnu, s.s. hjarta, heili, sporður, skíði og fleira.

Í ferðunum er ekki ætlunin að skjóta dýr, heldur einungis að skjóta "vind" skoti úr byssunni með tilheyrandi látum. Boðið verður uppá hrefnukjöt í ferðunum og fólki gefin kostur á að kaupa sér eitthvað til að skola því niður með.

Matseðilinn verður nokkuð fjölbreyttur þó aðeins sé um að ræða hrefnujöt og má þar helst nefna..

Grillað hrefnukjöt

Hrátt hrefnukjöt  með wasabi, engifer og soya sósu

Grafið hrefnukjöt í melónu

Reykt hrefnukjöt

Þurrkað hrefnukjöt

og svo að sjálfsögðu súran hval

 

Sérstök heimasíða hefur verið sett upp fyrir erlenda ferðamenn og aðra www.whaler.is

 

Athugasemdir

 

Minimize

Hrefnukjöt fæst hjá:

Minimize

See full size image

 

 

Hrafnreyður ehf.      Grandatröð 4   220   Hafnarfjörður    Sími: 577 3408  gsm: 690-3408  �hrefna@hrefna.is