| 19. maí 2012 - Hrafnreyður KÓ-100 komin með 6 hrefnur í ár!! |
Hrafnreyður KÓ landar sínu sjötta dýri í dag við Hafnarfjarðarhöfn. Dýrið veiddist í Faxxaflóa í gærdag. Rúmlega sjö metra tarfur. Dýrið fer beina leið í vinnslu Hrafnreyðar í Hafnarfirði og verður skorið þar niður fyrir verslanir og veitingahús. Sala á hrefnukjöti er komin á fullt skrið og búið að dreifa í allar verslanir landsins þremur tegundum af marineruðu hrefnukjöti og einni tegund af hreinum vöðva- - allt vakúmpakkað úrvalshrefnukjöt á grillið í kvöld |
| 5. maí 2012 - Búið að veiða 4 hrefnur!! |
Hrafnreyður landaði í gærkvöldi tveim dýrum við Hafnarfjarðarhöfn. Dýrin voru meðalstór og þokkaleg fita komin á þau miðað við tíma. Bæði dýrin voru veidd í Faxaflóa og voru af sitthvoru kyninu. Dýrin verða unnin um helgina í kjötvinnslu Hrafnreyðar við Grandatröð 4 í Hafnarfirði og dreifing á kjötinu fer á fullt strax eftir helgi. Veðurútlit fyrir næstu daga er ágætt og stefnan sett á að fara út aftur á sunnudag |
| 4. maí 2012 - Mikið líf í Faxaflóa |
Mikið hefur verið af hrefnu í dag í Faxaflóa. Hrafnreyður fór út í morgun og var búin að veiða eitt dýr núna síðdegis og var ætlunin að reyna ná öðru áður en lagt var að stað til baka í Hafnarfjörðinn. |
| 29. apríl 2012 - Hrafnreyður KÓ-100 komin með sína fyrstu hrefnu í ár!! |
Hrafnreyður KÓ - 100 veiddi sína fyrstu hrefnu þetta sumarið nú síðdegis í dag. Dýrinu verður landað í fyrramálið við Hafnarfjarðarhöfn og fer beint í vinnslu og dreifingu. Það verður því komið nýtt og ferskt hrefnukjöt í verslanir og á veitingahús í vikunni |
| 28. mars 2012 - Hrefnuveiðar fara að hefjast!! |
 Hrafnreyður KÓ - 100 er að gera sig klára til veiða, stefnan sett á miðjan næsta mánuð.... |
| 17. janúar 2012 - Súr Hvalur |
Hrafnreyður ehf. hefur hafið sölu á Súrum hval fyrir Þorrann. Hægt er að fá hvalinn afgreiddan vakúmpakkaðann í minni einingum og allt upp í heilar tunnur (70 kg). Einnig er eitthvað til af súru hrefnurengi og söltuðu halspiki. |
| 25. nóvember 2011 - Marinerað hrefnukjöt verður til í verslunum í vetur |
Marinerað hrefnukjöt verður til sölu í flestum verslunum í vetur og því mögulegt að halda veislunni áfram. Kjötvinnsla Hrefnuveiðimanna mun vinna kjöt fram eftir vetri þar til það klárast. Stefnan verður síðan tekin á að hefja veiðar aftur í apríl 2012. |
| 5. september 2011 - Búið að veiða 51 dýr í sumar!! |
Hrefnuveiðimenn fá þrjú dýr inn til vinnslu nú í upphafi vikunnar. Hrafnreyður veiddi tvö dýr um helgina og Konráð Eggertsson tók eina. Veiðin mun halda áfram út september bæði hér í Faxaflóa og í Ísafjarðardjúpi.Kjötið af þessum dýrum mun að mestu fara beint út til verslanna og veitingahúsa, enda farið að vanta kjöt á flestum stöðum. |
| 13. ágúst 2011 - Engin skortur á Hrefnukjöti!! |
Mikið hefur verið rætt um skort á kjöti í verslunum og kjötborðum landsins. Hrefnuveiðimenn vilja benda á að engin skortur er á hrefnukjöti og verður engin skortur á hrefnukjöti allt þetta ár. Hrefnukjöt er hægt að kaupa ferskt á meðan veiðar standa, bæði marinerað og ómarinerað. Hrefnukjöt er síðan hollasta kjöt sem hægt er að fá ríkt af Omega 3 fitusýrum, 26 gr af Próteini og einungis 0,9 g af fitu í hverjum 100 grömmum. Hrefnukjöt fæst í öllum verslunum landsins. Verði ykkur að góðu |
| 5. ágúst 2011 - Búnir að veiða jafn mikið af hrefnu og í fyrra!! |
Hrefnuveiðimenn hafa tekið 48 dýr í sumar og þar með veitt jafn mikið og allt síðasta sumar. Það má því gera ráð fyrir því að eitthvað fleiri dýr verði tekin í ár. |
| 3. ágúst 2011 - Hrafnreyður landar hrefnu nr. 46 í sumar |
Hrafnreyður KÓ-100 var við veiðar í Faxaflóa í gær og veiddi eina hrefnu. Þar með hafa Hrefnuveiðimenn veitt 46 dýr í sumar. Dýrinu verður landað við Hafnarfjarðarhöfn í dag og fer beint í vinnslu hjá Kjötvinnslu Hrefnuveiðimanna. Sala á hrefnukjöti hefur gengið vel í sumar, þrátt fyrir að ekki hafi verið jafnmikið um grilldaga eins og síðastliðin ár. Veiðar koma til með að halda áfram út ágúst og ferskt hrefnukjöt í boði á þeim tíma. |
| 26. júlí 2011 - 44 hrefnur veiddar í sumar!! |
Hrefnuveiðimenn eru búnir að veiða 44 hrefnur í sumar. Tvær hrefnur voru veiddar í Faxaflóa í gær. Dýrin voru bæði mjög stór, annað tarfur og hin belja. Magi hrefnunnar er fullur af Makríl þessa dagana og mikil ferð er á dýrunum þar sem þær eru að elta Makrílinn. Veðurútlit er ekkert sérstaklega spennandi næstu daga en stefnan sett á að fara í allaveganna einn túr til viðbótar fyrir verslunarmannahelgi. Hrefnuveiðimenn veiddu 48 dýr í fyrra og fara því að nálgast þá veiði í ár, ljóst er að eitthvað verður veitt meira nú í ár. |
| 18. júlí 2011 - Hrefnuveiðimenn búnir að veiða 38 hrefnur í sumar!! |
Hrafnreyður KÓ mun landa við Hafnarfjarðarhöfn í fyrramálið einu dýri og hafa því veitt 38 dýr það sem af er þessu sumri. Skipið mun fara út aftur að lokinni löndun og halda hrefnuveiðum áfram. |
| 12. júlí 2011 - 32 hrefnur!! |
Hrafnreyður KÓ landaði í morgun tveimur hrefnum við Hafnarfjarðarhöfn og hafa því landað 32 dýrum það sem af er sumri. Veiðarnar ganga mjög vel þessa dagana og mikið er af hrefnu í Faxaflóa. Dýrin er nokkuð vel á sig komin og undantekningalaust er magin fullur af fiski. Hrafnreyður heldur veiðum áfram í vikunni eftir því sem veður leyfir. |
| 6. júlí 2011 - Hrefnuveiðimenn komnir með 28 dýr!! |
Hrefnuveiðarnar ganga mjög vel um þessar mundir, búið er að veiða 28 dýr. Tveimur dýrum verður landað í fyrramálið við Hafnarfjarðarhöfn, en eftir það halda skipverjar Hrafnreyðar út aftur til áframhaldandi veiða. Veidd verða tvö dýr á morgun og komið til vinnslu fyrir helgi. Framundan eru tvær stærstu grill vikur ársins og því um að gera að bjóða upp á nóg af hrefnukjöti í yfir 100 verslunum á landinu...sem aldrei fyrr!! |
| 23. júní 2011 - Hrefnuveiðimenn búnir að veiða 22 dýr |
Hrefnuveiðar ganga mjög vel þessa dagana. Hrafnreyður KÓ landar þremur dýrum í kvöld við Hafnarfjarðarhöfn og hafa því landað 22. dýrum þetta sumarið. Dýrin sem veiddust í þessarri ferð voru öll í minni kantinum, tveir tarfar og eitt kvendýr. Kjötið af dýrunum er mjög gott, dýrin eru vel á sig komin en ekki orðin feit ennþá. |
| 19. júní 2011 - 16 hrefnur veiddar í ár!! |
Hrafnreyður KÓ - 100, skip Hrefnuveiðimanna mun landa þremur dýrum við Hafnarfjarðarhöfn í fyrramálið. Þá er búið að veiða 16 hrefnur þetta árið. Skipið mun halda strax út aftur, enda mikið líf í flóanum og veðurútlit ágætt næstu daga. |
| 15. júní 2011 - Hrefnuveiðimenn á facebook!! |
Kíktu á Hrefnuveiðimenn á facebook. Þú finnur okkur undir "Hrefnukjöt - Hrefnuveðimenn" - þar er hægt að fylgjast með daglegum færslum frá okkur og finna ýmsar upplýsingar. |
| 15. júní 2011 - Hrafnreyður KÓ - 100 tók dýr nr. 13 í gær í Faxaflóa!! |
Veður var frekar leiðinlegt í gær þegar Hrafnreyður var við veiðar í Faxaflóa. Það náðist þó að taka eitt dýr og hafa Hrefnuveiðimenn því tekið 13 dýr það sem af er sumri. Kjötið kemur til vinnslu í dag og verður til dreifingar í fyrramálið. |
| 13. júní 2011 - Hrafnreyður KÓ fer til veiða í fyrramálið!! |
Hrafnreyður KÓ - 100 leggur af stað til veiða í fyrramálið. Stefnan verður sett á Faxaflóa. Hrefnuveiðimenn hafa landað 12 hrefnum það sem af er þessu sumri. Verslanir hafa tekið vel við kjötinu og er kjöt komið í allar verslanir landsins. Hrefnuveiðimenn bjóða upp á tvær tegundir af marineruðu hrefnukjöti og síðan er hreint vakúmpakkað hrefnukjöt í neytendapakkningum einnig í boði. Þá er hægt að komast yfir hrefnukjöt í kjötborðum verslanna. Reykt hrefnukjöt í neytendapakkningum er einnig í boði í flestum verslunum. Kjötið er þunnt skorið og vakúmpakkað í 130 gr. pakkningar. |
| 8. júní 2011 - Hrefnuveiðimenn komnir með 10 hrefnur í sumar!! |
Hrafnreyður KÓ - 100 veiddi sitt tíunda dýr í Faxaflóa í dag. Mikið líf er komið í flóann og mikið um hrefnu. Dýrið sem veiddist í dag reyndist þokkalegt kvendýr og verður því landað við Hafnarfjarðarhöfn í fyrramálið. Dýrið fer beina leið í kjötvinnslu Hrefnuveiðimanna við Grandatröð þar sem það er skorið niður og sett í marineringu fyrir stóra grillhelgi framundan. |
| 7. júní 2011 - Erlendir ferðamenn hafa aldrei borðað meira hrefnukjöt!! |

Mikil aukning hefur verið á sölu áhrefnukjöti til erlendra ferðamanna á síðustu árum. Fjöldi veitingahúsa sem selja hrefnukjöt hefur aukist og fer að mestu leyti fram yfir sumarið á meðan erlendir ferðamenn eru sem flestir á landinu. Þeir ferðamenn sem koma til landsins virðast flestir vita til þess að íslendingar eru að veiða hvali og að neysla á hvalkjöti sé eitthvað sem fyglir sögu þjóðarinnar. Veitingamenn staðfesta að mikið sé um að ferðamenn fari fyrst í hvalaskoðun og gæði sér síðan á hrefnusteik í kjölfarið. Þessi þróun er virkilega jákvæð og sýnir að hvalaskoðun og hvalveiðar geta vel farið saman. Meira mætti þó vera um samstarf á milli þessarra greina og mætti jafnvel fara að bjóða upp á hrefnukjöt í hvalaskoðunarferðum!! |
| 2. júní 2011 - Búið að veiða 8 hrefnur!! |

Hrafnreyður KÓ - 100 veiddi tvær hrefnur í dag og er því búin að veiða átta hrefnur það sem af er sumri. Dýrin voru nokkuð vel á sig komin miðað við árstíma. Rúmlega átta metra langur tarfur, en hitt dýrið var öllu minna kvendýr. Afurðir af dýrunum verður komið í kjötvinnslu Hrefnuveiðimanna og unnið að því að koma kjötinu í verslanir fyrir helgina. Skip Hrefnuveiðimanna mun væntanlega halda út aftur þegar veður leyfir. |
| 25. maí 2011 - Hrefnuveiðar halda áfram eftir smá hlé... |
Hrafnreyður KÓ - 100 landaði sínu fimmta dýri nú í kvöld við Hafnarfjarðarhöfn. Hrefnan var nokkuð vel á sig komin, feitur rúmlega sjö metra tarfur. Skip Hrefnuveiðimanna hafði ekkert komist á veiðar undanfarna daga vegna brælu. Veðurútlit er nokkuð gott fyrir næstu daga og stefnan því sett á að ná nokkrum dýrum á næstu dögum. Víða er hrefnukjöt uppselt í verslunum og kjötvinnsla Hrefnuveiðimanna því klár í að fara marinera grillkjöt fyrir komandi sólardaga. |
| 17. maí 2011 - Reykt og grafið hrefnukjöt í verslanir fyrir helgi!! |
Hrefnuveiðimenn munu vinna að pökkun og dreifingu á reyktu og gröfnu hrefnukjöti næstu daga. Reykt hrefnukjöt seldist mjög vel allt síðasta ár, en hefur ekki verið á boðstólnum síðustu vikur. Kjötið er taðreykt að gamla laginu af Hnýfli ehf. á Akureyri. Hnýfill hefur náð því besta út úr hrefnukjötinu með því að reykja það með sínum hætti og var varan m.a. valin forréttur ársins af áramótablaði Gestgjafans 2010. Grafið hrefnukjöt er unnið af Hrefnuveiðimönnum ehf. eftir uppskrift frá Stefáni Úlfarssyni matreislumeistara á Þremur Frökkum. Kjötið er sérvalið og aðeins notast við úrvals hráefni. Undirstaðan er bláberjagrautur og timjan. Vara sem sannarlega hægt er að mæla með. Vörurnar verða komnar í verslanir fimmtudag og föstudag. |
| 10. maí 2011 - Fjórar hrefnur veiddar!! |
Hrafnreyður KÓ - 100 veiddi tvær hrefnur í Faxaflóa sl. laugardag. Bæði dýrin voru meðalstór kvendýr. Kjötið af dýrunum var unnið í gær í kjötvinnsluhrefnuveiðimanna og verður til dreifingar í vikunni. Skipverjar á Hrafnreyði fóru út í morgun og ætla að vera við veiðar í dag. |
| 30. apríl 2011 - Tvær hrefnur veiddust í morgun |
Hrefnuveiðimenn hafa veitt fyrstu hrefnur sumarsins og var þeim landað við Hafnarfjarðarhöfn í kvöld. Dýrin voru frekar mögur, en kjötið fallegt að sjá. Vinnsla Hrefnuveiðimanna mun vinna kjötið af dýrunum í fyrramálið og stefnt er að því að kjötið verði komið í verslanir á mánudagsmorgun. |
| 29. apríl 2011 - Fyrsta hrefnan veiðist á morgun!! |
Hrafnreyður KÓ - 100 mun halda til veiða í fyrramálið frá Hafnarfjarðarhöfn. Skipið fór út í leiðindaveðri fyrir nokkrum dögum og sáust nokkrar hrefnur sem hurfu fljótt í ölduna. Veðrið er öllu betra um helgina og því allar líkur á því að fyrsta hrefna sumarsins verði veidd á morgun(Laugardag). Skipverjar ætla þó að vera við veiðar einnig á sunnudag og verður því vonandi nýtt og ferskt hrefnukjöt í verslunum landsins í næstu viku. |
| 26. apríl 2011 - Hrefnuvertíðin að hefjast |
Hrafnreyður KÓ-100 mun halda út í fyrramálið frá hafnarfjarðarhöfn til veiða á hrefnu í Faxaflóa. Veðrið hefur tafið nokkuð fyrir upphafi hrefnuveiðitímabilsins, en áætlað er að fara í fyrramálið þrátt fyrir að spá sé ekkert sérstaklega góð. Hrefnuveiðimenn munu vinna allt hrefnukjötið í sumar í kjötvinnslu sinni að Grandatröð 4 í Hafnarfirði og verður dreift í allar verslanir og veitingastaði sem bjóða upp á hrefnukjöt. Kjötið verður með svipuðu sniði og undanfarin ár, marinerað tilbúið beint á grillið eða hreint kjöt í vakúmpakkningum. Gera má ráð fyrir að kjötið verði komið í flestar verslanir í næstu viku. |
| 22. febrúar 2011 - Hrefnuveiðimenn flytja í Hafnarfjörð |
Hrefnuveiðimenn ehf. hafa flutt starfsemi sína í stærra og hentugra húsnæði við Grandatröð 4 í Hafnarfirði. Um er að ræða eldra fiskvinnsluhúsnæði þar sem auðveldara verður að taka á móti dýrum og vinna fyrir innanlandsmarkað. Einnig er steft að því að frysta fisk og pakka fyrir innlenda og erlenda markaði. Skip Hrefnuveiðimanna, Hrafnreyður KÓ verður einnig flutt yfir í Hafnarfjörðinn og því landað við Hafnarfjarðarhöfn á komandi sumri. |