Norður – Atlantshafs sjávarspendýraráðið (e.The North Atlantic Marine Mammal Commission)
Norður – Atlantshafs sjávarspendýraráðið var stofnað þann 9. apríl 1992 og stofnsáttmáli þess undirritaður af Noregi, Íslandi, Grænlandi og Færeyjum í Nuuk á Grænlandi. Meginmarkmið samningsins er að beita nútímalegri nálgun til fræðast um vistkerfi sjávar. Það er vettvangur fyrir aðildarlöndin til að stuðla að rannsóknum, stjórnun og verndun sjávarspendýra á Norður – Atlantshafi. Þrátt fyrir að aðildaríkin séu einungis fjögur, þar af eru Noregur og Ísland einu fullvalda ríkin, hafa mörg ríki áheyrnafullrtrúa á fundum ráðsins og má þar helst nefna Japan, Rússland og Kanada. Bæði Rússar og Kanadamenn hafa sýnt því áhuga að ganga inn í ráðið. Einnig hefur ráðið skipst á áheyrnafulltrúum við alþjóðastofnanir eins og Alþjóðahvalveiðiráðið(IWC), Alþjóðahafrannsóknarráðið (ICES), Norðvestur – Atlantshafsfiskveiðistofnunina (NAFO) og Norðaustur – Atlantshafsfiskveiðistofnunina ( NEAFC). Ráðið hefur aðalskrifstofur sínar í Tromsö í Noregi.
NAMMCO var aðalvettvangur Íslands fyrir samstarfi við aðrar þjóðir á málefnum hvalveiða eftir að við sögðum okkur úr Alþjóðahvalveiðiráðinu árið 1992. Við inngöngu Íslands í NAMMCO voru uppfylltar þær alþjóðlegu skuldbindingar sem Ísland tók á sig skv. 65. gr. Hafréttarsáttmála Sameinuðu þjóðanna varðandi samráðsskyldu ríkja varðandi hvalveiðar. Þrátt fyrir endurinngöngu Íslands í Alþjóðahvalveiðiráðið tekur Ísland virkan þátt í störfum þess líkt og Noregur hefur gert samhliða þáttöku sinni í Alþjóðahvalveiðiráðinu.
Ákvarðanartaka og yfirstjórn NAMMCO er í höndum ráðsins (e. council) skv. 4., 7. og 8. gr. stofnsáttmála ráðsins. Auk ráðsins eru tvær meginnefndir starfandi, þ.e. vísindanefndin
Heimasíða NAMMCO